Staðsetningar / Skúlagata 17

Skúlagata 17

Green Parking ehf. annast rekstur gjaldskyldra bílastæða í bílakjallaranum á Skúlagötu í eigin nafni, auk veitingar þjónustu við bílaeigendur í tengslum við notkun bílastæðanna.

Greiða fyrir bílastæði / Pay for parking

Smelltu á 'Greiða' til að greiða fyrir bílastæði. Bílnúmer er skráð í næsta skrefi.

Greiða / Pay →

Um bílastæðin

Bílastæði fyrir Skúlagötu 17 eru fyrir framan húsið og eru merkt gjaldskyld.

Merkingar fyrir gjaldskyld bílastæði eru sýnilegar með upplýsingaskiltum á íslensku og ensku.

Gjaldskylda er allan sólarhringinn.

Ef greitt er fyrir bílastæði með EasyPark bætist færslugjald við viðverugjaldið.

Ef farið er af svæðinu án þess að greiða er hægt að greiða fyrir viðveru innan 48 klukkustunda frá brottför.

Gjaldskrá

Fyrstu 20 mín

0 kr

Fyrstu 3 klukkustundirnar

600 kr

Eftir þann tíma: 250 kr. pr. klst. Hámarksgjald pr. sólarhring: 4.500 kr.

Greiðsluleiðir

Stafræn greiðsluvél

Greitt er fyrir bílastæði með stafrænni greiðsluvél með QR kóða sem er á bláa skiltinu.

EasyPark appið

Í appinu EasyPark eru settar inn upplýsingar um ökutækið þar sem m.a. er hægt að haka við „Camerapark“ til að sjálfvirkni í greiðslum geti átt sér stað.

Autopay appið

Viðskiptavinir geta greitt fyrir viðveru í gegnum Autopay appið.

Myndavélakerfi frá Autopay

Bílastæðið notar sjálfvirkt bílnúmeraplötulestrarkerfi frá Autopay sem sér um skráningu inn- og útaksturs ökutækja af svæðinu. Kerfið eykur þægindi fyrir viðskiptavini og einfaldar greiðsluferlið töluvert.

Eftirágreiðsla innan 48 klukkustunda

Ef farið er af svæðinu án þess að greiða er hægt að greiða fyrir viðveru innan 48 klukkustunda frá brottför.

Það er gert með því að fara inn á vefsíðu Autopay hér.

Þar er bílnúmer slegið inn í leitarglugga og birtast þá ógreiddar lagningar ökutækisins, ef uppfletting á sér stað innan 48 klukkustunda frá brottför.

Vangreiðslugjald

Vangreiðslugjald er lagt á bifreið í gjaldskyldu bílastæði þegar sýnt þykir að ekki hafi verið greitt fyrir stöðu bifreiðar í stæðinu eða greitt hefur verið fyrir of stuttan tíma. Krafa vegna vangreiðslugjalds er stofnuð á kennitölu bíleiganda eða umráðamanns, sé hann skráður í ökutækjaskrá. Krafan birtist samdægurs í netbanka/bankaappi. Ef krafan er ekki greidd kann hún að vera send í innheimtu hjá innheimtufyrirtæki.

  • Vangreiðslugjald: 5.500 kr.
  • Við vangreiðslugjald leggst færslugjald vegna rafræns reiknings að fjárhæð kr. 250.

Athugasemdir vegna álagningar

Bíleigandi eða umráðamaður getur gert athugasemd vegna álagningar vangreiðslugjalds innan 14 daga frá því að álagning var lögð á ökutækið. Slík athugasemd er skráð inn í dálkinn "Hafa samband" og þar er valið "Þjónusta". Þar eru skráð helstu upplýsingar eins og númer ökutækis og staðsetningu bílastæðasvæðis.

Svar mun berast í tölvupósti innan 14 daga frá því að athugasemdin barst.

Fá frekari upplýsingar