Greiða fyrir bílastæði / Pay for parking
Smelltu á 'Greiða' til að greiða fyrir bílastæði / Click 'Pay' to pay for the parking.
Bílnúmer er skráð í næsta skrefi / The registration number is filled in the next step.
Nóatún 17
Green Parking ehf. sér um rekstur bílastæða í eigin nafni sem og fyrir fyrirtæki og húsfélög og sér um alla þjónustu við bílaeigendur í tengslum við notkun þeirra á gjaldskyldum bílastæðum á svæðum félagsins.
Um er að ræða öll bílastæðin á lóðinni við verslunarmiðstöðina og skrifstofuhúsnæði við Nóatún 17. Bílastæðin eru öll gjaldskyld. Fjöldi bílastæða eru um 100 á þremur hliðum við húsið. Inn- og útgangar eru á tveimur stöðum.
Merkingar fyrir gjaldskyld bílastæði eru sýnilegar með upplýsingaskiltum við inngang og báða útganga og einnig er upplýsingarskilti við innganginn á þjónustumiðstöðinni.
Gjaldskylda
Gjaldskylda er allan sólarhringinn en frítt er að leggja fyrstu 45 mínúturnar. Eftir þann tíma er rukkað skv. gjaldskrá:
- Bílastæði: 350 kr. pr. klst.
- Fyrstu 45 mínúturnar eru gjaldfrjálsar.
- Hámarksgjald pr. sólarhring: 4.500 kr.
Greitt er fyrir bílastæði í stafrænni greiðsluvél með QR kóða sem er á bláu skiltunum eða með appinu EasyPark auk færslugjalds sem EasyPark leggur ofan á viðverugjaldið.
Í appinu eru settar inn upplýsingar um ökutækið þar sem einnig er hægt að haka við „CameraPark“ í appinu til að sjálfvirkni í greiðslum geti átt sér stað.
Vangreiðslugjald
Vangreiðslugjald er lagt á bifreið í gjaldskyldu bílastæði þegar sýnt þykir að ekki hafi verið greitt fyrir stöðu bifreiðar í stæðinu eða greitt hefur verið fyrir of stuttan tíma. Krafa vegna vangreiðslugjalds er stofnuð á kennitölu bíleiganda eða umráðamanns, sé hann skráður í ökutækjaskrá. Krafan birtist samdægurs í netbanka/bankaappi. Ef krafan er ekki greidd kann hún að vera send í innheimtu hjá innheimtufyrirtæki.
- Vangreiðslugjald: 5.500 kr.
- Við vangreiðslugjald leggst færslugjald vegna rafræns reiknings að fjárhæð kr. 250.
Athugasemdir vegna álagningar
Bíleigandi eða umráðamaður getur gert athugasemd vegna álagningar vangreiðslugjalds innan 14 daga frá því að álagning var lögð á ökutækið. Slík athugasemd er skráð inn í dálkinn "Hafa samband" og þar er valið "Þjónusta". Þar er hægt að skrá inn helstu upplýsingar eins og númer ökutækis og staðsetningu bílastæðasvæðis.
Svar mun berast í tölvupósti innan 14 daga frá því að athugasemdin barst.
- Nánari upplýsingar veitir þjónustuver Green Parking hér.

