N1 Borgartún
Green Parking ehf. sér um rekstur bílastæða í eigin nafni sem og fyrir fyrirtæki og húsfélög og sér um alla þjónustu við bílaeigendur í tengslum við notkun þeirra á gjaldskyldum bílastæðum á svæðum félagsins.
Um er að ræða öll bílastæðin á lóðinni við N1 – þjónustumiðstöðina og eru þau öll gjaldskyld. Fjöldi bílastæða eru um 30 og hægt er að keyra inn á einum stað en útgangur er á tveimur stöðum.
Greiða fyrir bílastæði / Pay for parking
Smelltu á 'Greiða' til að greiða fyrir bílastæði. Bílnúmer er skráð í næsta skrefi.
Um bílastæðið
Gjaldskylda er allan sólarhringinn en frítt er að leggja fyrstu 45 mínúturnar. Eftir þann tíma er rukkað skv. gjaldskrá
Merkingar fyrir gjaldskyld bílastæði eru sýnilegar með upplýsingaskiltum á íslensku og ensku.
Ef greitt er fyrir bílastæði með EasyPark bætist færslugjald við viðverugjaldið.
Ef farið er af svæðinu án þess að greiða er hægt að greiða fyrir viðveru innan 48 klukkustunda frá brottför.

Gjaldskrá
Bílastæði pr.klst
600 kr
Hámarksgjald pr. sólarhring: 4.500 kr.
Fyrstu 45 mínúturnar eru gjaldfrjálsar.
Greiðsluleiðir
Stafræn greiðsluvél
Greitt er fyrir bílastæði með stafrænni greiðsluvél með QR kóða sem er á bláa skiltinu.
EasyPark appið
Í EasyPark appinu Þar eru settar inn upplýsingar um ökutækið þar sem einnig er hægt að haka við „CameraPark“ í appinu til að sjálfvirkni í greiðslum geti átt sér stað.
Autopay appið
Viðskiptavinir geta greitt fyrir viðveru í gegnum Autopay appið.
Myndavélakerfi frá Autopay
Innan 48 klst frá brottför
Gleymdir þú að greiða?
Þú getur greitt eftirá á vef Autopay. Sláðu inn bílnúmerið þitt til að finna ógreiddar lagningar.
Bílnúmer er skráð í næsta skrefi á autopay.io
Sjálfvirk skráning
Bílastæðið notar sjálfvirkt bílnúmeraplötulestrarkerfi frá Autopay sem sér um skráningu inn- og útaksturs ökutækja af svæðinu. Kerfið eykur þægindi fyrir viðskiptavini og einfaldar greiðsluferlið töluvert.
- Ekið inn á svæðið
- Bílnúmer skráð sjálfkrafa
- Greitt fyrir viðveru
Vangreiðslugjald
Vangreiðslugjald er lagt á bifreið í gjaldskyldu bílastæði þegar sýnt þykir að ekki hafi verið greitt fyrir stöðu bifreiðar í stæðinu eða greitt hefur verið fyrir of stuttan tíma. Krafa vegna vangreiðslugjalds er stofnuð á kennitölu bíleiganda eða umráðamanns, sé hann skráður í ökutækjaskrá. Krafan birtist samdægurs í netbanka/bankaappi. Ef krafan er ekki greidd kann hún að vera send í innheimtu hjá innheimtufyrirtæki.
- Vangreiðslugjald: 5.500 kr.
- Við vangreiðslugjald leggst færslugjald vegna rafræns reiknings að fjárhæð kr. 250.
Athugasemdir vegna álagningar
Bíleigandi eða umráðamaður getur gert athugasemd vegna álagningar vangreiðslugjalds innan 14 daga frá því að álagning var lögð á ökutækið. Slík athugasemd er skráð inn í dálkinn "Hafa samband" og þar er valið "Þjónusta". Þar er hægt að skrá inn helstu upplýsingar eins og númer ökutækis og staðsetningu bílastæðasvæðis.
Svar mun berast í tölvupósti innan 14 daga frá því að athugasemdin barst.
- Nánari upplýsingar veitir þjónustuver Green Parking í gegnum netfangið hjalp@greenparking.is.


