Staðsetningar / N1 Ártúnshöfði

N1 Ártúnshöfði

Green Parking ehf. sér um rekstur bílastæða í eigin nafni sem og fyrir fyrirtæki og húsfélög og sér um alla þjónustu við bílaeigendur í tengslum við notkun þeirra á gjaldskyldum bílastæðum á svæðum félagsins.

Um er að ræða öll bílastæðin á lóðinni við N1 – þjónustumiðstöðina og eru þau öll gjaldskyld. Fjöldi bílastæða eru 55. Hægt er að keyra inn á tveim stöðum en útgangur er á þrem stöðum.

Greiða fyrir bílastæði / Pay for parking

Smelltu á 'Greiða' til að greiða fyrir bílastæði. Bílnúmer er skráð í næsta skrefi.

Greiða / Pay →

Um bílastæðið

Merkingar fyrir gjaldskyld bílastæði eru sýnilegar með upplýsingaskiltum, á íslensku og ensku.

Gjaldskylda er allan sólarhringinn, alla daga ársins

Gjaldskrá

Frítt að leggja fyrstu 45 mín

Síðan greitt frá komu fyrir lengri dvöl

Bílastæði pr.klst

600 kr

Hámarksgjald pr. sólarhring: 4.500 kr.

Greiðsluleiðir

EasyPark appið

QR kóði er staðsettur á skiltunum til að sækja appið. Ef aðilar eru með stillt á CameraPark í appinu er greiðslan rukkuð sjálfvirkt.

Stafræn greiðsluvél

Greitt með stafrænni greiðsluvél með QR kóða sem er staðsettur á skiltunum.

AutoPay appið

Greitt með AutoPay appinu. Ef aðilar eru með greiðslukort tengt við bílnúmerið í appinu er greiðslan rukkuð sjálfvirkt.

Greiðsluleiðir hjá Green Parking

Green Parking býður upp á þægilegar og sveigjanlegar greiðsluleiðir sem geta verið mismunandi eftir staðsetningum. Á sumum stöðum er greiðsluvél á svæðinu, á öðrum er eingöngu hægt að greiða stafrænt. Upplýsingar um hvaða greiðsluleiðir eru í boði má alltaf finna á skiltum á viðkomandi staðsetningu.

Greiðslumöguleikar

Annað hvort er greiðsluvél á staðnum og/eða hægt að greiða með stafrænum hætti í gegnum stafræna greiðsluvél á heimasíðu Green Parking.

Greiðsla með greiðsluvél á staðnum

  • Fara þarf í greiðsluvél, slá inn bílnúmer og greiða.

Greiðsla með stafrænum hætti

Stafræn greiðsla í gegnum vefsíðu eða í gegnum smáforrit/app.

ATH, á sumum staðsetningum gæti þurft að skrá sig inn á bílastæðið handvirkt í smáforriti/appi.

  • Í gegnum vefsíðu: Stimpla inn bílnúmerið og greiða
  • Í gegnum app: Setja inn upplýsingar um ökutækið eða vera með hakað í "Camerapark" svo greiðsla geti átt sér stað með sjálfvirkum hætti

Greiðsla með Autopay

Autopay er sjálfvirk greiðslulausn sem byggir á myndavélakerfi sem les bílnúmer.

  • Þegar ekið er inn á bílastæði tekur myndavél mynd af bílnúmeri ökutækisins.
  • Við brottför er aftur tekin mynd og viðvera reiknuð.
  • Ef þú ert með skráðan reikning og greiðslukort hjá Autopay er gjaldið skuldfært sjálfkrafa – þú þarft ekkert að aðhafast.
  • Ef þú ert ekki með reikning hjá Autopay geturðu greitt eftir á með því að fara inn á greiðslusíðu Autopay og slá inn bílnúmerið þitt.

Autopay er í boði á Green Parking staðsetningum þar sem myndavélakerfi er uppsett.

Greiðsla með EasyPark

EasyPark býður upp á stafræna greiðslu fyrir bílastæði og er í boði á mörgum Green Parking stöðum.

  • Greiða má með EasyPark appinu eða með því að skanna QR-kóða sem er á upplýsingaskiltum á svæðinu.
  • Í appinu skráir þú bílnúmer ökutækisins og velur viðkomandi svæði.
  • Hægt er að virkja valkostinn CameraPark í EasyPark appinu, sem gerir greiðsluna sjálfvirka þar sem myndavélakerfi er í notkun.
  • EasyPark leggur þjónustugjald ofan á viðverugjald samkvæmt sinni verðskrá.

Eftir á greitt bílastæðagjald

Eftir á greitt bílastæðagjald er lagt á bifreið í gjaldskyldu bílastæði þegar sýnt þykir að ekki hafi verið greitt fyrir stöðu bifreiðar í stæðinu eða greitt hefur verið fyrir of stuttan tíma. Krafa vegna gjaldsins er stofnuð á kennitölu bíleiganda eða umráðamanns, sé hann skráður í ökutækjaskrá. Krafan birtist samdægurs í netbanka/bankaappi.  Ef krafan er ekki greidd kann hún að vera send í innheimtu hjá innheimtufyrirtæki.

  • Vangreiðslugjald: 5.500 kr.

Athugasemdir vegna álagningar

Bíleigandi eða umráðamaður getur gert athugasemd vegna álagningar vangreiðslugjalds innan 14 daga frá því að álagning var lögð á ökutækið. Slík athugasemd er skráð inn í dálkinn "Hafa samband" og þar er valið "Þjónusta". Þar eru skráð helstu upplýsingar eins og númer ökutækis og staðsetningu bílastæðasvæðis.

Svar mun berast í tölvupósti innan 14 daga frá því að athugasemdin barst.