Hótel Aurora - Keflavíkurflugvöllur
Green Parking ehf. sér um rekstur bílastæða í eigin nafni sem og fyrir fyrirtæki og húsfélög og sér um alla þjónustu við bílaeigendur í tengslum við notkun þeirra á gjaldskyldum bílastæðum á svæðum félagsins.
Greiða fyrir bílastæði / Pay for parking
Smelltu á 'Greiða' til að greiða fyrir bílastæði. Bílnúmer er skráð í næsta skrefi.
Um bílastæðin
Um er að ræða öll bílastæðin á lóðinni við flughótelið Hótel Aurora við Keflavíkurflugvöll og eru þau öll gjaldskyld.
Fjöldi bílastæða eru um 200 bílastæði á þremur hliðum við húsið og er aðkoman á tveimur stöðum þar sem eru inn- og útgangar á báðum stöðum.
Merkingar fyrir gjaldskyld bílastæði eru sýnileg með upplýsingaskiltum á íslensku og ensku.
Í öppunum eru settar inn upplýsingar um ökutækið þar sem m.a. er hægt að haka við „CameraPark“ til að sjálfvirkni í greiðslum geti átt sér stað. Öppin innheimta þjónustugjald ofan á viðverugjaldið.
Ef greitt er fyrir bílastæði með EasyPark bætist færslugjald við viðverugjaldið.

Gjaldskrá
Gjaldskylda er allan sólarhringinn, alla daga ársins
Frítt að leggja fyrstu 15 mín, síðan greitt frá komu fyrir lengri dvöl
Bílastæði
1.190 kr. pr. klst.
Heill dagur
8.500 kr
Greiðsluleiðir
Greitt með Easy Park appinu
QR kóði er staðsettur á skiltunum til að sækja appið. Ef aðilar eru með stillt á CameraPark í appinu er greiðslan rukkuð sjálfvirkt.
Stafræn greiðsluvél
Greitt með stafrænni greiðsluvél með QR kóða sem er staðsettur á skiltunum.
Greitt með AutoPay appinu
Ef aðilar eru með greiðslukort tengt við bílnúmerið í appinu er greiðslan rukkuð sjálfvirkt.
Myndavélakerfi frá Autopay
Bílastæðið notar sjálfvirkt bílnúmeraplötulestrarkerfi frá Autopay sem sér um skráningu inn- og útaksturs ökutækja af svæðinu. Kerfið eykur þægindi fyrir viðskiptavini og einfaldar greiðsluferlið töluvert.
Eftirágreiðsla innan 48 klukkustunda
Ef farið er af svæðinu án þess að greiða er hægt að greiða fyrir viðveru innan 48 klukkustunda frá brottför.
Það er gert með því að fara inn á vefsíðu Autopay
Þar er bílnúmer slegið inn í leitarglugga og birtast þá ógreiddar lagningar ökutækisins, ef uppfletting á sér stað innan 48 klukkustunda frá brottför.
Eftir á greitt bílastæðagjald
Eftir á greitt bílastæðagjald er lagt á ef ekki er greitt áður en farið er út af bílastæðinu.
Slíkt gjald er lagt á bifreið í gjaldskyldu bílastæði þegar sýnt þykir að ekki hafi verið greitt fyrir stöðu bifreiðar í stæðinu eða greitt hefur verið fyrir of stuttan tíma.
Krafa vegna gjaldsins er stofnuð á kennitölu bíleiganda eða umráðamanns, sé hann skráður í ökutækjaskrá. Krafan birtist samdægurs í netbanka/bankaappi.
Ef krafan er ekki greidd kann hún að vera send í innheimtu hjá innheimtufyrirtæki.
- Eftir á greitt bílastæðagjald: 4.500 kr.
- Við vangreiðslugjaldið leggst færslugjald vegna rafræns reiknings að fjárhæð kr 250
Athugasemdir vegna álagningar
Bíleigandi eða umráðamaður getur gert athugasemd vegna álagningar vangreiðslugjalds innan 14 daga frá því að álagning var lögð á ökutækið. Slík athugasemd er skráð inn í dálkinn "Hafa samband" og þar er valið "Athugasemd vegna álagningar". Reikninga má nálgast á þínum aðgangi hjá Green parking. Þar eru skráðar inn helstu upplýsingar eins og númer ökutækis og staðsetningu bílastæðasvæðis.
Svar mun berast í tölvupósti innan 14 daga frá því að athugasemdin barst.
- Nánari upplýsingar veitir þjónustuver Green Parking í gegnum netfangið hjalp@greenparking.is.

