Hafnartorg bílakjallari
Green parking ehf. sér um rekstur bílastæða í bílakjöllurum á Hafnartorgi, við Landsbankann og Reykjastræti fyrir hönd eigenda auk þjónustu við bílaeigendur í tengslum við notkun bílastæðanna.
Myndavélar lesa bílnúmer við komu og þarf að greiða við brottför í gjaldmælum sem eru 1 á hvorri hæð bílahússins. Hægt er að greiða í gegnum greiðsluvélar sem eru Hafnartorgsmegin. Einnig er hægt að greiða með EasyPark og Parka, gjaldsvæði Hafnartorg, Landsbankinn eða Reykjastræti.
Fá frekari upplýsingar
Hafnartorg bilakjallari
Gjaldskylda er allan sólarhringinn. Myndavélar lesa bílnúmer við komu og þarf að greiða við brottför í gjaldmæli. Einnig er hægt að greiða með EasyPark og Parka, gjaldsvæði Hafnartorg.
Reykjastræti bílakjallari
Gjaldskylda er allan sólarhringinn. Myndavélar lesa bílnúmer við komu og þarf að greiða við brottför í gjaldmæli. Einnig er hægt að greiða með EasyPark og Parka, gjaldsvæði Reykjastræti.
Gjaldskrá (Gildir fyrir Hafnartorg, Landsbankann bílakjallara og Reykjastræti)
Gjaldskylda er allan sólarhringinn. Myndavélar lesa bílnúmer við komu og þarf að greiða við brottför í gjaldmæli. Einnig er hægt að greiða með EasyPark og Parka.
- Tímagjald 660 kr.- frá kl. 08:00 - 22:00
- Tímagjald 340 kr.- frá kl. 22:00 - 08:00
Vangreiðslugjald
Vangreiðslugjald er lagt á bifreið í gjaldskyldu bílastæði þegar sýnt þykir að ekki hafi verið greitt fyrir stöðu bifreiðar í stæðinu eða greitt hefur verið fyrir of stuttan tíma.
Vangreiðslugjaldið er 7500 kr.-
Ef greitt er innan þriggja daga fæst 1000 kr.- afsláttur. 250 kr.- seðilgjald leggst ofaná reikninga.
Merkingar fyrir gjaldskyld bílastæði eru sýnilegar með upplýsingaskiltum. Bæði við greiðsluvélar og þegar ekið er inn í bílakjallarann eru skilti þar sem tekið er skýrt fram hverjar greiðsluleiðir eru og hvaða gjaldsvæði sé í boði. Við getum því miður ekki tekið greiðslur til annarra gjaldsvæða gildar ef valið er rangt gjaldsvæði í öppunum, t.d. Höfðatorg eða P1-P4. Næsta dag eftir álagningu er krafan stofnuð og send í netbanka umráðamanns/eiganda ökutækisins til innheimtu. Eftir að krafan hefur verið stofnuð er einnig hægt að greiða gjaldið í bönkum og sparisjóðum.
Athugasemdir vegna álagningar
Bíleigandi eða umráðamaður getur gert athugasemd vegna álagningar vangreiðslugjalds innan 14 daga frá því að álagning var lögð á ökutækið. Slík athugasemd er skráð inn í dálkinn "Hafa samband" og þar er valið "Þjónusta". Þar eru skráð helstu upplýsingar eins og númer ökutækis og staðsetningu bílastæðasvæðis.
Svar mun berast í tölvupósti innan 14 daga frá því að athugasemdin barst.
