Félagsstofnun Stúdenta
Green parking ehf. sér um rekstur bílastæða Félagsstofnunar Stúdenta við Eggertsgötu, Suðurgötu og Sæmundargötu fyrir hönd eigenda auk þjónustu við bílaeigendur í tengslum við notkun bílastæðanna.
Fjöldi bílastæða eru um 475 við Sæmundargötu 14-20, Eggertsgötu 2-34 og Suðurgötu 121.
Greiða fyrir bílastæði / Pay for parking
Smelltu á 'Greiða' til að greiða fyrir bílastæði. Bílnúmer er skráð í næsta skrefi.
Um bílastæðin
Inn- og útgangar eru merktir á myndinni hér fyrir neðan.
Myndavélar lesa bílnúmer við komu og brottför.
Bílastæðin eru vel merkt með upplýsingaskiltum á íslensku og ensku.
Viðvera undir 20 mínútum er gjaldfrjáls.
Hámarksviðverugjald á sólarhring: 7.000 kr.
Vangreiðslugjald: 4.500 kr. (bætist ofan á ef ekki er greitt innan 48 klst.) + 250 kr. Seðilgjald.
Íbúar Stúdentagarða í Sæmundargötu 14-21, Eggertsgötu 2-34 og Suðurgötu 121 geta sótt um mánaðarpassa.

Gjaldskrá
Tímagjald
630 kr. á virkum dögum frá 07:00 – 17:00
230 kr. eftir kl. 17:00 og um helgar.
Tímagjald eftir 3 klst
1.990 kr. (bætist við eftir 3 klst.)
Hámarksviðverugjald á sólarhring: 7.000 kr.
Mánaðarpassar
1 bíll: 1.500 kr./mánuði
2 bílar: 7.500 kr./mánuði
3 bílar: 22.500 kr./mánuði
Greiðsluleiðir
Mánaðarpassi
Hægt er að kaupa mánaðarpassa fyrir 1-3 bíla hér: https://greenparking.is/bilastaedakort
EasyPark appið
Í appinu EasyPark eru settar inn upplýsingar um ökutækið þar sem valið er svæðisnúmerið 390 eða svæðið kemur sjálfkrafa upp þegar komið er inn á bílastæðið.
Stafræn greiðsluvél
Greitt með stafrænni greiðsluvél með QR kóða sem er staðsettur á skiltunum.
Autopay appið
Viðskiptavinir geta einnig greitt fyrir viðveru í gegnum Autopay appið.
Myndavélakerfi frá Autopay
Bílastæðið notar sjálfvirkt bílnúmeraplötulestrarkerfi frá Autopay sem sér um skráningu inn- og útaksturs ökutækja af svæðinu. Kerfið eykur þægindi fyrir viðskiptavini og einfaldar greiðsluferlið töluvert.
Eftirágreiðsla innan 48 klukkustunda
Ef farið er af svæðinu án þess að greiða er hægt að greiða fyrir viðveru innan 48 klukkustunda frá brottför.
Það er gert með því að fara inn á vefsíðu Autopay: https://autopay.io/
Þar er bílnúmer slegið inn í leitarglugga og birtast þá ógreiddar lagningar ökutækisins, ef uppfletting á sér stað innan 48 klukkustunda frá brottför.
Upplýsingar um mánaðarpassa
Íbúar Stúdentagarða í eftirtöldum húsnúmerum geta sótt um mánaðarpassa:
- Sæmundargata 14-21,
- Eggertsgata 2-34,
- Suðurgata 121
- Íbúar þessara svæða geta nýtt mánaðarpassann á öllum þremur bílastæðasvæðunum.
Athugið: Aðeins íbúar með virkan leigusamning við Félagsstofnun Stúdenta geta sótt um mánaðarpassa sem veitir heimild til að dvelja og leggja í stæði á svæðinu. Greitt er mánaðargjald fyrir mánaðarpassa og getur hver leigutaki verið með allt að 3 bílastæðakort í áskrift.
Umsókn um mánaðarpassa
Umsókn um mánaðarpassa fer fram í gegnum Mínar Síður hjá Green parking. Innskráning er með rafrænum skilríkjum. Einungis þeir sem eru skráðir fyrir leigusamningi við FS geta sótt um mánaðarpassa.
Athugasemdir vegna daggjalds
Bíleigandi eða umráðamaður getur gert athugasemd vegna álagningar daggjalds innan 14 daga frá því að álagning var lögð á ökutækið. Slík athugasemd er skráð inn í gegnum Mínar síður.
Svar mun berast innan 14 daga frá því að athugasemdin barst.
Spurt og svarað
Geta handhafar P-merkis lagt gjaldfrjálst í bílastæði við Félagsstofnunar Stúdenta?
Já. Til að handhafar P-merkis geti lagt gjaldfrjálst við bílstæði Félagsstofnunar Stúdenta þarf að skrá viðkomandi.
Til þess eru tvær leiðir:
Með Autopay appinu:
Handhafi P-merkis sækir og setur upp Autopay appið ef viðkomandi er ekki þegar með appið. Autopay appið er gjaldfrjálst og án skuldbindinga. Viðkomandi skráir síðan bílnúmer sitt í appið. Ekki þarf að skrá greiðslukort í appið nema viðkomandi ætli að nota það á öðrum stöðum.
Handhafi P-merkis sendir síðan tölvupóst á netfangið hjalp@greenparking.is með mynd af P-merkinu til staðfestingar og upplýsingum um netfangið sem var notað fyrir Autopay aðganginn.
Þjónustuver Greenparking úthlutar í gegnum Autopay leyfi til viðkomandi til að leggja gjaldfrjálst á bílastæðum Félagsstofnunar Stúdenta.
Kosturinn við að nota Autopay appið er að notandi getur skipt um bílnúmer í appinu (eða haft fleiri númer skráð) ef viðkomandi er ekki alltaf á sama bíl og þarf því ekki að láta vita af breytingunni. Leyfið tengist Autopay aðganginum en ekki bílnúmerinu.
Án Autopay appsins:
Ef viðkomandi getur ekki eða vill ekki sækja og setja upp Autopay aðgang sendir viðkomandi tölvupóst á hjalp@greenparking.is með mynd af P-merkinu til staðfestingar og bílnúmeri.
Þjónustuver Greenparking skráir bílnúmerið á lista yfir handhafa P-merkis og þá er hægt að leggja viðkomandi bíl gjaldfrjálst á bílastæðum á bílastæðum Félagsstofnunar Stúdenta.
Leyfið tengist bílnúmeri og viðkomandi þarf að láta vita ef skipt er um bíl til að hægt sé að uppfæra skráð bílnúmer.


