Egilshöll
Green Parking ehf. sér um rekstur bílastæða við Egilshöll fyrir hönd eigenda, auk þjónustu við bílaeigendur í tengslum við notkun bílastæðanna.
Greiða fyrir bílastæði / Pay for parking
Smelltu á 'Greiða' til að greiða fyrir bílastæði. Bílnúmer er skráð í næsta skrefi.
Um bílastæðin
Bílastæðin við alla helstu innganga fyrir utan Egilshöllina eru skammtímastæði.
Önnur bílastæði eru almenn bílastæði.
Bílastæðin eru vel merkt með upplýsingaskiltum á íslensku og ensku
Við inn- og útakstur les myndavélakerfi bílnúmer ökutækis og skráir viðveru á svæðinu sjálfvirkt.
Hægt er að greiða fyrir bílastæði með fjölbreyttum og þægilegum greiðsluleiðum, bæði á staðnum og rafrænt.


Gjaldskrá
Skammtímastæði
15 mín.
Frítími
Almenn bílastæði
4 klst.
Frítími
Gjaldskrá
Bílastæði: 450 kr. á klst
Greiðsluþak á dag: 4.500 kr
Greiðsluleiðir
Greiðsluvél á svæðinu
Staðsett við inngang Egilshallar - greitt fyrir viðveru á staðnum.
Stafræn greiðsluvél
Greitt rafrænt í gegnum vefinn.
Autopay appið
Viðskiptavinir geta einnig greitt fyrir viðveru í gegnum Autopay appið.
EasyPark appið
Einnig er hægt að greiða með EasyPark appinu.
EasyPark svæðiskóðar:
- Langtímastæði: 380
- Skammtímastæði: 381
Myndavélakerfi frá Autopay
Bílastæðið notar sjálfvirkt bílnúmeraplötulestrarkerfi frá Autopay sem sér um skráningu inn- og útaksturs ökutækja af svæðinu. Kerfið eykur þægindi fyrir viðskiptavini og einfaldar greiðsluferlið töluvert.
Eftirágreiðsla innan 48 klukkustunda
Ef farið er af svæðinu án þess að greiða er hægt að greiða fyrir viðveru innan 48 klukkustunda frá brottför.
Það er gert með því að fara inn á vefsíðu Autopay hér.
Þar er bílnúmer slegið inn í leitarglugga og birtast þá ógreiddar lagningar ökutækisins, ef uppfletting á sér stað innan 48 klukkustunda frá brottför.
Mikilvægar upplýsingar
Ef ekki hefur verið greitt fyrir viðveru á svæðinu innan 48 klukkustunda frá brottför verður send krafa í heimabanka fyrir ógreiddri viðveru ásamt seðilgjaldi.
Slík krafa er lögð á ökutæki í gjaldskyldu bílastæði þegar sýnt þykir að ekki hafi verið greitt fyrir stöðu ökutækis í stæðinu eða greitt hefur verið fyrir of stuttan tíma.
Krafa vegna gjaldsins er stofnuð á kennitölu eiganda ökutækis eða umráðamanns, sé hann skráður í ökutækjaskrá.
Krafan birtist samdægurs í netbanka eða bankaappi. Ef krafan er ekki greidd kann hún að vera send í innheimtu hjá innheimtufyrirtæki.
Spurt og svarað
- Hvers vegna er verið að rukka fyrir stæði við Egilshöll?
Þetta er gert til að bæta aðgengi fyrir þá sem eru að sækja þjónustu eða mæta á æfingar í húsinu.
Sjá nánar hér.
- Er það Egilshöll sem er að rukka fyrir stæði?
Gjaldtakan er á vegum húseiganda, sem er fasteignafélagið Heimar. Framkvæmd gjaldtökunnar er í umsjón Green Parking.
- Hvað er Green Parking?
Green Parking er fyrirtæki sem sérhæfir sig í nútímalegum og sjálfvirkum lausnum fyrir rekstur bílastæða, bílakjallara og bílastæðahúsa.
- Þarf ég alltaf að borga ef ég stoppa á svæðinu?
Nei. Á flestum stæðum við Egilshöll eru fjórar fyrstu klukkustundirnar gjaldfrjálsar. Gjaldtakan er fyrst og fremst ætluð þeim sem skilja ökutæki eftir á stæðunum í lengri tíma en ekki gagnvart þeim sem eru að sækja þjónustu eða mæta á æfingar.
- Hvar má ég leggja án þess að borga?
Á skammtímastæðum má að hámarki vera í 15 mínútur án þess að greiða. Þau stæði eru boginn fyrir framan aðalinngang, stæðin fyrir framan Shake and Pizza og stæðin við vörumóttökur vestan megin við Egilshöll. Þessi stæði eru ætluð þeim sem eru að sækja eða skutla. Á öðrum stæðum er hægt að leggja í að hámarki fjórar klukkustundir á dag án þess að greiða.
- Hvernig virkar gjaldtakan fyrir stæði?
Myndavélakerfi á svæðinu les bílnúmeraplötur ökutækja sem ekið er inn og út af svæðinu og fylgist þannig með hvaða ökutæki eru á svæðinu og hversu lengi. Ef ökutækið er innan frítímans á svæðinu þarf ekkert að gera. Ef lagt er lengur á svæðinu þarf að greiða fyrir.
- Hvernig greiði ég fyrir stæði ef ég er umfram frítímann?
Það eru ýmsar greiðsluleiðir í boði. Hægt er að nota bílastæðaöppin Autopay og Easypark til að greiða. Einnig er hægt að skanna QR kóða á merkingum á svæðinu til að fara inn á greiðslusíðu fyrir Egilshöllina.
- Hvenær þarf ég að greiða?
Greitt er fyrir stæði áður en farið er af svæðinu. Ef greitt er á greiðslusíðu eftir að greiðsla berst hefur ökumaður nokkrar mínútur til að fara af svæðinu. Ef sjálfvirkar greiðslur eru virkar í bílastæðaappi þarf ekkert að gera þar sem appið sér um greiðsluna.
ATH, ef ekki er búið að greiða fyrir viðveru 48 klst. eftir brottför verður send út krafa í banka fyrir ógreidda viðveru + seðilgjaldi.
- Ég er með reikning frá Green Parking, hvaða reikningur er þetta?
Þú getur skráð þig inn á Mínar Síður hjá Green Parking hér og skráð þig þar inn með rafrænum skilríkjum. Þar getur þú séð upplýsingar vegna reikningsins og sent inn athugasemdir.
