BSÍ - Vatnsmýrarvegur 10

Green parking ehf. sér um rekstur bílastæða á BSÍ fyrir hönd eigenda auk þjónustu við bílaeigendur í tengslum við notkun bílastæðanna.

Bílastæðin eru til hliðar við húsið.

Merkingar fyrir gjaldskyld bílastæði eru sýnilegar með upplýsingaskiltum á íslensku og ensku

.

Greitt er fyrir bílastæði með sjálfvirkri greiðsluvél gegnum QR kóða sem er á bláu skiltunum.

Einnig er hægt er að greiða með appinu EasyPark. Annars vegar eru settar inn upplýsingar um ökutækið eða með sjálfvirkum þannig að hægt er að haka við „CameraPark“ til að sjálfvirkni í greiðslum geti átt sér stað með EasyPark

Gjaldskylda er allan sólarhringinn:

  • Bílastæði: 600 kr. pr. klst.
  • Fyrstu 45 mínúturnar eru gjaldfrjálsar.
  • Hámarksgjald á sólarhring er 4.500 kr

Vangreiðslugjald

Vangreiðslugjald er lagt á bifreið í gjaldskyldu bílastæði þegar sýnt þykir að ekki hafi verið greitt fyrir stöðu bifreiðar í stæðinu eða greitt hefur verið fyrir of stuttan tíma. Krafa vegna vangreiðslugjalds er stofnuð á kennitölu bíleiganda eða umráðamanns, sé hann skráður í ökutækjaskrá. Krafan birtist samdægurs í netbanka/bankaappi. Ef gjaldið er ógreitt 14 dögum frá álagningu er krafan send í milliinnheimtu.

  • Vangreiðslugjald: 5.500 kr.

Athugasemdir vegna álagningar

Bíleigandi eða umráðamaður getur gert athugasemd vegna álagningar vangreiðslugjalds innan 14 daga frá því að álagning var lögð á ökutækið. Slík athugasemd er skráð inn í dálkinn "Hafa samband" og þar er valið "Þjónusta". Þar eru skráð helstu upplýsingar eins og númer ökutækis og staðsetningu bílastæðasvæðis.

Svar mun berast í tölvupósti innan 14 daga frá því að athugasemdin barst.

Upplýsingar um hvernig skal hefja lagningu í Easy Park smáforritinu/appinu í símanum.

Yfirlitsmynd bílastæða við BSÍ