Borgartún 18
Green Parking ehf. sér um rekstur bílastæða í eigin nafni sem og fyrir fyrirtæki og húsfélög og sér um alla þjónustu við bílaeigendur í tengslum við notkun þeirra á gjaldskyldum bílastæðum á svæðum félagsins.
Green parking ehf. sér um rekstur bílastæða við Borgartún 18 fyrir hönd eigenda auk þjónustu við bílaeigendur í tengslum við notkun bílastæðanna.
Bílastæðin sem eru fyrir framan húsið eru gjaldskyld.
Merkingar fyrir gjaldskyld bílastæði eru sýnilegar með upplýsingaskiltum.
Gjaldskylda er frá kl. 08:00 - 17:00 alla virka daga ársins.
Gjaldskrá:
- Bílastæði: 600 kr. pr. klst.
- Hámarksgjald pr. sólarhring: 4.500 kr.
Greitt er fyrir bílastæði með Easy park appinu.
Í appinu EasyPark eru settar inn upplýsingar um ökutækið þar sem valið er svæðisnúmerið 400 eða svæðið kemur sjálfkrafa upp þegar komið er inn á bílastæðið.
Fyrstu 120 mínúturnar eru fríar að því gefnu að fólk skrái bílinn inn með Easy Park appinu.
Eftirlitsvörður er á svæðinu og hefur umsjón með skráningu bílnúmera vegna notenda sem hafa ekki skráð sig inn í Easy Park appinu og fá því þjónustugjald sent í heimabanka. Skráðir eigendur eða umráðamenn bifreiða (ef skráður í ökutækjaskrá) fá þá senda kröfu í heimabanka að fjárhæð kr. 4.500, auk seðilgjalds.
- Nánari upplýsingar veitir þjónustuver Green Parking í gegnum netfangið hjalp@greenparking.is.



